28.4.2011 | 12:23
Fyrirtæki
Nú er komin fram hugmynd um stofna fyrirtæki, Sölumiðstöð Íslands sem eignast mun fyrirtækið Sustainable Iceland sem er markaðsfélag í Bandaríkjunum. Allar afurðir sem nú eru seldar í smásöluverslunum WFM kynntar undir því vörumerki. Sölumiðstöðin ætti því að verða eðlilegt framhald af átaksverkefninu Áformi. Áform var lengst framanaf, styrkt af Landbúnaðarráðuneytinu í samvinnu við Bændasamtök Íslands en á seinni árum einnig með mótframlögum fyrirtækjanna sem unnið hefur verið með til markaðssetningar.
Á síðustu tveimur hefur orðið vakning meðal Bandaríkjamanna um hollustu matvæla. Sú mikla fræðsla, sem fram hefur farið, fékk góðan hljómgrunn í heilbrigiðsfrumvarpi sem þingið hefur samþykkt. Forsetaembættið undir forystu forsetafrúarinnar hefur vakið athygli á því að meira en helmingur Bandaríkjamanna þjáist af sjúkdómum sem beint tengjast mataræðis, til dæmis offitu, sykursýki og háu stigi kólesteróls í blóði. Áhugi fólks á breyttu mataræði fer því vaxandi og falla því íslenkar afurðir einkar vel að þeirri hugarfarsbreytingu, sem nú á sér stað.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Um bloggið
Baldvin Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.