Dollarinn sterkasti gjaldmiðillinn

Í gærkvöld og í morgun var ekki um annað  fjallað í fjölmiðlum hér Bandaríkjunum en efnahagsaðgerðaráætlun Obama stjórnarinnar. Enda ekki að furða þar sem þetta er langstærsta björgunaráætlun sem nokkru sinni hefur verið lögð fram í þessu landi. En það var ekki bara Bandaríska þjóðin sem fylgdist með málinu, það var allur heimurinn.

Þegar maður horfir aðgerða þessarar ungu þjóðar er merkilegt að sjá hvað menn eru lítt hikandi og óhræddir við að taka ákvarðanir. Þegar horft er nú til Evrópu þá virðast Evrópuþjóðirnar vera enn að skoða vandamálin, greina orsakir og leita sökudólga. Hér aftur á móti er ráðist að lausn vandans, orsökin er ljós og sökudólgarnir verða dregnir til ábyrgðar.

Bandaríkjamenn standa frammi fyrir stórum vandamálum. Það geysar stríð í Írak, Pakistan og Afganistan. Það er öllum einnig ljóst að vandamálin í Miðjarðarhafslöndunum verða ekki leyst án aðkomu þeirra. Þá er gríðarlega mikið verk óunnið í heilbrigðismálum og öðrum félagslegum málum. En þeir forgansraða.Númer eitt er að fjölga störfum og koma í veg fyrir að fólk missi heimili sín og það er viðfangsefnið sem mest er lögð áhersla á. En til að unnt sé að gefa fólki, kost á að skuldbreyta húnsnæðislánum sínum þarf fólkið að hafa atvinnu.

Þegar horft er til Evrópu í dag virðast menn ekki finna leiðir. Mér sýnist því menn bíða spenntir eftir því hvernig Bandaríkjamönnum tekst til. Það virðist líka vera að gerast, þrátt fyrir allt, að dollarinn sé að verða sterkasti gjaldmiðill heimsins. Evran er að falla og búist er við að Asíuþjóðir muni fella gengið gangvart dollar sem hefur styrkst á síðustu dögum vegna aukinnar eftirspurnar.

Heima á Íslandi er ánægjulegt að sjá að nú sé stefnt að því að hjálpa fólki við endurskipulagningu húsnæðislána. Það er gott framtak. En það sem skiptir líka miklu máli er að leggjast nú öll á eitt með að kanna með hvaða tiltækum ráðum megi tryggja fleiri störf í landinu. Það  versta sem við upplifum í nokkru samfélagi er atvinnuleysi. Hér leggja menn mikla áherslu á að stór hluti þeirra starfa sem aðgerðaráætlunin stefnir að eru störf í þágu samfélagsins til frambúðar. Þar eru störf við endurbyggingu húsa í eigu opinberra aðila, samgöngur, hrein orkuframleiðsla osfrv. Að þessum málum verður unnið í samvinnu einkaaðila og hins opinbera.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldvin Jónsson

Höfundur

Baldvin Jónsson
Baldvin Jónsson
Áhugamaður um landið og miðin
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • JF2 4515
  • Baldvin RAMW
  • ...j_vcapitol2
  • ...bj_vcapitol
  • ...bj_capitol

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 750

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband